Fréttir
2024
2023
desember, nóvember, október, september, ágúst, júlí, júní, maí, apríl, mars, febrúar, janúar
2022
desember, nóvember, október, september, ágúst, júlí, júní, maí, apríl, mars, febrúar, janúar
2021
desember, nóvember, október, september, ágúst, júlí, júní, maí, apríl, mars, febrúar, janúar
2020
desember, nóvember, október, september, ágúst, júlí, júní, maí, apríl, mars, febrúar, janúar
2019
desember, nóvember, október, september, ágúst, júlí, júní, maí, apríl, mars, febrúar, janúar
2018
desember, nóvember, október, september, ágúst, júlí, júní, maí, apríl, mars, febrúar, janúar
2017
desember, nóvember, október, september, ágúst, apríl, mars, febrúar, janúar
2016
desember, nóvember, október, september, ágúst, júlí, júní, maí, apríl, mars, febrúar, janúar
2015
desember, nóvember, október, september, ágúst, júlí, júní, maí, apríl, mars, febrúar, janúar
2014
2013
október, september, ágúst, júlí, maí, apríl, mars, febrúar, janúar
2012
desember, nóvember, október, september, ágúst, júlí, júní, maí, apríl, mars, febrúar, janúar
2011
2010
2009
2008
2007
2006
desember, október, september, júlí, júní, apríl, mars, febrúar, janúar
2003
Fréttasafn: 2006 (Síða 2)
Fyrirsagnalisti
Úrræðaleysi í hjúkrun á Landspítala
Ég undirrituð get því miður ekki lengur orða bundist vegna úrræðaleysis á Landspítala, í Fossvogi sem og á fleiri stöðum. Ég á ástvin, stjúpföður, sem er með Parkinson og hefur verið mjög veikur og hefur verið á sjúkrahúsi síðan 16. desember 2005. Þannig að manneklan hefur ekki farið framhjá mér fremur en öðrum aðstandendum. Aðstaðan, umönnun, og fleira er til háborinnar skammar og engum bjóðandi, hvorki börnum né eldra fólkinu, sem allt sitt líf hefur unnið hörðun höndum, verður veikt og fær engan veginn þá ummönun og þjónustu sem allir eiga rétt á í þessu svokallaða velferðarþjóðfélagi!
Lesa meiraHönnun nýrrar heilbrigðisþjónustu
Samtök atvinnulífsins bætast nú í hóp þeirra sem lýsa efasemdum um fyrirhugaðar framkvæmdir svonefnds hátæknisjúkrahúss í Vatnsmýri. Formenn og framkvæmdastjórar aðildarfélaga ÖBÍ ályktuðu þann 9. febrúar að heildarsamtök fatlaðra, sjúkra og aldraðra skyldu hið fyrsta koma að málinu. Fundurinn lagði á það áherslu að allir kostir væru gaumgæfilega skoðaðir varðandi nýtt hátæknisjúkrahús með fulltrúum notenda þjónustunnar. Mestu máli skipti að komið væri til móts við brýnustu þarfir þeirra um leið og vandað væri til uppbyggingar sjúkrahúsþjónustu, eins og þar sagði. ÖBÍ hefur ekki lýst yfir andstöðu við fyrirhugaðar framkvæmdir í Vatnsmýri en mikillar óánægju gætir með skort á samráði við notendur og framtíðarsýn í heilbrigðisþjónustu.
Lesa meiraOrðskrípið hátæknisjúkrahús
Af einhverjum ástæðum hefur umræðan í þjóðfélaginu um byggingu á nýju húsnæði fyrir Landspítala - háskólasjúkrahús farið í undarlegan farveg. Iðulega er orðið hátæknisjúkrahús notað þegar málið er rætt og í framhaldi af því hefur umræðan þróast í að fjalla um hvort þjóðin þurfi yfir höfuð meiri hátæknilækningar, hvort ekki sé betra að verja fjármunum í að bæta grunnþjónustu. Málið snýst hins vegar ekki um það.
Lesa meiraNýtt háskólasjúkrahús frá grunni - eða á gömlum grunni?
Eins og öllum er kunnugt stendur fyrir dyrum uppbygging á nýju húsnæði fyrir Landspítala neðan gömlu Hringbrautarinnar í Reykjavík. Deilur hafa risið um staðsetninguna eftir að deiliskipulag var kynnt og í ljós kom að fyrirhuguð er gríðarstór, fremur lágreist bygging, sem mun dreifast yfir víðáttumikið flæmi í Vatnsmýrinni. Í umræðunni vill þó gleymast hvað rekur menn til verksins - og ekki síður, að annar valkostur er fyrir hendi á lóð Landspítala við Hringbraut, en sá valkostur hefur næstum enga umræðu fengið.
Lesa meiraVafasamar ákvarðanir
Á síðastliðnu ári sat ég ráðstefnu á vegum Unesco í Vínarborg þar sem fjallað var sérstaklega um hönnun nýbygginga í sögulegu umhverfi. Ýmsar athyglisverðar skoðanir voru viðraðar, þ.ám. var því algjörlega hafnað að byggja háhýsi í eldri borgarhlutum. Þétting byggðar skyldi taka mið af þeirri byggð sem fyrir væri, bæði hvað varðar húsahæðir og mælikvarða. Ekki skyldi leggja hraðbrautir í gegnum borgarmiðjur heldur lögð áhersla á breiðstræti sem reynst hafa vel í mörgum evrópskum stórborgum.
Lesa meira,,Hátæknisjúkrahús" eða hvað?
Í umræðu síðustu missera um málefni nýs háskólasjúkrahúss hafa margir notað orðið "hátæknisjúkrahús". Að tala um hátæknisjúkrahús er séríslenskt fyrirbrigði.
Þó ég lesi og hlusti víða á umræðu um sjúkrahúsmál á erlendum vettvangi, virðist notkun orðatiltækis sem á ensku væri hægt að kalla "high technology hospital" ekki vera til. Þetta nýyrði er í ofanálag stundum notað í tengslum við einhvers konar úrtölu um Landspítala - háskólasjúkrahús og reynt að gera því skóna að ekki sé þörf á að byggja upp fullkomið, alhliða háskólasjúkrahús í landinu, vegna þess að það hljóti að vera svo dýrt að hafa alla inni á "hátæknisjúkrahúsi". Væntanlega ætti þá að vera til mótvægi sem mætti kalla "lágtæknisjúkrahús", en hver vill svoleiðis fyrirbrigði?
Lesa meiraLandspítali háskólasjúkrahús
Á langri ævi hef ég átt því láni að fagna að vera heilsuhraustur. Samt hefur það hent mig að þurfa að leggjast á sjúkrahús og hafa bæði Borgarspítalinn í Fossvogi og Landspítalinn komið þar við sögu. Á báðum þeim stöðum hef ég notið frábærrar umönnunar, sem ég þakka af alhug, sem ég og gerði í Velvakanda Morgunblaðsins hinn 16. október 2002. Hér vil ég ítreka það og aftur leggja mitt lóð á vogarskálarnar, til þess að viðhalda og efla starfsemi þeirra beggja. Þessa dagana er mér efst í huga, að við íbúar höfuðborgarsvæðisins fáum áfram að búa við það öryggi, sem aðeins tveir bráðaspítalar geta veitt, m.ö.o. að áfram verði starfandi bráðadeildir á tveimur stöðum í Reykjavík.
Lesa meiraHefur stefnumótun í heilbrigðismálum brugðist?
Í vetur hefur Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir, nýútskrifaður doktor í stjórnsýslufræðum, haldið uppi málefnalegri umræðu og komið með mjög athyglisverðar ábendingar í greinum og fyrirlestrum um að skynsamlegt væri fyrir ráðamenn að skilgreina þjónustu í heilbrigðiskerfinu, hverju hún eigi að skila, hvernig henni verði best fyrir komið og heppilegt gæti verið að ljúka þeirri vinnu áður en ráðist verður í nýjar byggingar fyrir Landspítala.
Lesa meiraSteypa fyrst - spyrja svo
Í grein heilbrigðisráðherra í Morgunblaðinu 3. janúar sl. gefur að líta kennslubókardæmi um það hvernig ekki á að standa að stefnumörkun í heilbrigðismálum. Þar lýsir æðsti yfirmaður stefnumörkunar heilbrigðismála því yfir, að hann sé orðinn leiður "á sífelldum stefnuleysisumræðum" þegar hann sem "hinn pólitíski leiðtogi" fjölmennustu þjónustustarfsemi landsins ætti að fagna hverju því tækifæri sem gefst til að árétta stefnu yfirvalda og vera óþreytandi við að skýra ákvarðanir sínar í ljósi þeirrar stefnu. Ráðherrann segir stefnuna hins vegar birtast í ákvörðunum sem teknar eru frá degi til dags og tiltekur ákvarðanir um hin ýmsu hlutverk Landspítala - háskólasjúkrahúss, en lætur lesandanum það eftir að rýna í það hvers konar stefna liggi þar að baki. Þessi nálgun ráðherrans við mörkun stefnu staðfestir niðurstöður rannsóknar minnar á aðdragandanum að sameiningu sjúkrahúsanna í Reykjavík á sl. áratug.
Lesa meiraSkipulags- og umhverfisslys í miðborg Reykjavíkur
Á undanförnum árum hefur vaknað mikill áhugi á skipulagsmálum á höfuðborgarsvæðinu. Fólk hefur látið skipulagsmál sig miklu varða enda mikið í húfi þar sem mikilvæg svæði eins og Vatnsmýrin, Hringbraut, Hafnarsvæðið í Reykjavík hafa verið efst á baugi. Öll þessi umræða, skoðanaskipti og ágreiningur er af hinu góða þar sem hinn almenni borgari lætur heyra í sér með meiri krafti en oft áður. Í þessum pistli ætla ég að bera á borð nokkur dæmi sem hafa verið mikið í umræðunni undanfarið og gera grein fyrir þeim mistökum sem hafa átt sér stað í skipulagi í borginni. Fyrst ætla ég að fjalla lítillega um færslu Hringbrautar og Landsspítalann háskólasjúkrahús (LSH) og á næstu vikum mun ég taka fyrir önnur svæði í miðborg Reykjavíkur.
Lesa meiraVandlega valinn staður fyrir nýja háskólasjúkrahúsið
Bygging nýja háskólasjúkrahússins sem er að hefjast verður mesta framfaramál í íslenskri heilbrigðisþjónustu og heilbrigðisvísindum á Íslandi um langa hríð. Staðsetningin var ákveðin eftir vandaða undirbúningsvinnu með þarfir sjúklinga í huga, þarfir samfélagsins fyrir auknar rannsóknir í heilbrigðisvísindum í tengslum við landssjúkrahúsið og vilja og þarfir borgarinnar. Aðdragandi nýbyggingarinnar hefur verið langur, mjög vel skipulagður og fjölmargir hafa þar átt hlut að máli.
Lesa meiraSjúkrahúsin í Reykjavík: Hvers vegna tvö en ekki eitt
Ég fagna þeim skrifum um LSH sem birst hafa á síðum Morgunblaðsins undanfarið og sem rekja má til skrifa minna um LSH og heilbrigðiskerfið. Þetta er umræða sem verðskuldar athygli og forgang vegna þeirra tímamóta sem nú eru í íslenskum heilbrigðismálum. Að öðrum ólöstuðum nefni ég sérstaklega greinar Jóhannesar M. Gunnarssonar (19.01.06) og Kristjáns Erlendssonar (20.01.06), sem eru upplýsandi og studdar vönduðum rökum.
Lesa meira