Fréttir
2024
2023
desember, nóvember, október, september, ágúst, júlí, júní, maí, apríl, mars, febrúar, janúar
2022
desember, nóvember, október, september, ágúst, júlí, júní, maí, apríl, mars, febrúar, janúar
2021
desember, nóvember, október, september, ágúst, júlí, júní, maí, apríl, mars, febrúar, janúar
2020
desember, nóvember, október, september, ágúst, júlí, júní, maí, apríl, mars, febrúar, janúar
2019
desember, nóvember, október, september, ágúst, júlí, júní, maí, apríl, mars, febrúar, janúar
2018
desember, nóvember, október, september, ágúst, júlí, júní, maí, apríl, mars, febrúar, janúar
2017
desember, nóvember, október, september, ágúst, apríl, mars, febrúar, janúar
2016
desember, nóvember, október, september, ágúst, júlí, júní, maí, apríl, mars, febrúar, janúar
2015
desember, nóvember, október, september, ágúst, júlí, júní, maí, apríl, mars, febrúar, janúar
2014
2013
október, september, ágúst, júlí, maí, apríl, mars, febrúar, janúar
2012
desember, nóvember, október, september, ágúst, júlí, júní, maí, apríl, mars, febrúar, janúar
2011
2010
2009
2008
2007
2006
desember, október, september, júlí, júní, apríl, mars, febrúar, janúar
2003
Fréttasafn: 2013 (Síða 2)
Fyrirsagnalisti
Forval vegna hönnunar nýrra Landspítalabygginga auglýst
Nýr Landspítali ohf. auglýsir frá og með deginum á morgun, þriðjudeginum 23. apríl, eftir umsækjendum til að taka þátt í útboði á hönnun nýrra bygginga sem verða hluti af nýjum Landspítala við Hringbraut. Um er að ræða opið forval bjóðenda auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu (EES), en útboðin verða lokuð öðrum en þeim sem tekið hafa þátt í forvalinu og uppfyllt allar kröfur þess.
Lesa meiraForval á næstu vikum
Á næstu vikum verður farið í forval fyrir byggingu nýs Landspítala þar sem leitað verður eftir hönnunarhópum sem tekið geta þátt í verkefninu. Vegna stærðar verkefnisins þarf valið að fara fram á EES svæðinu. Þetta kom fram í viðtali við Gunnar Svavarsson, formann stjórnar og byggingarnefndar NLSH ohf., í Morgunútvarpinu á Rás 2 á dögunum.
Í viðtalinu rekur Gunnar hvernig í raun var farið af stað með spítalamálið í þriðja sinn haustið 2009 þegar haldin var samkeppni um tillögu að forhönnun bygginganna. Fimm hópar tóku þátt en Spital-hópurinn, sem samanstóð af fulltrúum frá níu arkitekta- og verkfræðistofa, innlendum og erlendum, sigraði. Hönnunarvinnan hefur farið fram síðustu tvö ár og er nú búið að hanna 25% verksins en 75% eru eftir.
Undirbúningur gæti hafist í apríl
Formaður fjárlaganefndar Alþingis vonast til þess að undirbúningur að smíði nýs Landspítala við Hringbraut geti hafist í apríl, að því er fram kom í fréttum Bylgjunnar á dögunum.
Björn Valur Gíslason, formaður fjárlaganefndar Alþingis, segir að undirbúningur að smíði nýs spítala við Hringbraut muni vonandi hefjast í apríl en þingið samþykkti frumvarp um stofnun opinbers hlutafélags um byggingu nýs Landspítala rétt fyrir þinglok.
Lesa meiraÁríðandi að fá nýjan spítala
Tómas Guðbjartsson, hjarta- og lungnaskurðlæknir, segir áríðandi að fá nýjan spítala, í viðtali sem birtist við hann í Fréttablaðinu um helgina. Hann segir ákvarðanafælni einkenna umræðuna núna.
„Það að taka ekki ákvörðun getur verið dýrkeypt. Þetta er eins og með sjúklinginn sem kemur inn með hnífsstungu í hjartanu. Ef menn eru of lengi að ákveða hvað eigi að gera þá er hann dáinn. Það kostar mikið fé að viðhalda öllu því sem er að gefa sig hér á Landspítalanum. Við sjáum það bara með húsnæðið. Hér eru tugir starfsmanna með alvarleg öndunarfæraóþægindi," segir hann meðal annars í viðtalinu.
Lesa meiraBúið að afgreiða frumvarp úr fjárlaganefnd
Frumvarp um að ríkið fjármagni byggingu nýs Landspítala við Hringbraut var afgreitt úr fjárlaganefnd í gær. Björn Valur Gíslason, formaður fjárlaganefndar Alþingis, er bjartsýnn á að frumvarpið verði samþykkt fyrir þinglok.
„Mér finnst hafa tekist vel að fjalla um frumvarpið í nefndinni, þar er breið samstaða um málið að undanskildum Framsóknarflokknum. Það virðist vera fullur vilji til að opna á þessa nýju leið til að halda málinu gangandi.“
Lesa meiraVilja hefja uppbyggingu nýs Landspítala
Vinstri hreyfingin – grænt framboð telur að hefja eigi uppbyggingu nýs Landspítala, að því er fram kemur í stjórnmálaályktun sem samþykkt var á landsfundi flokksins um liðna helgi.
Þar kemur fram að markmiðið með nýjum byggingum Landspítala sé allt í senn að bæta þjónustu við sjúklinga, vinnuaðstæður starfsfólks og gera rekstur spítalans einfaldari og hagkvæmari. Þessi framkvæmd á að vera opinber framkvæmd, að því er fram kemur í ályktununni. Þá segir að samhliða þurfi að tryggja rekstur öflugs sjúkrahúss á Akureyri og heilbrigðisstofnana og sjúkrahúsa um land allt.
Betri þjónusta og minni rekstrarkostnaður
Þjónusta á sjúkrahúsum verður æ sérhæfðari og hugmyndin á bakvið eitt öflugt háskólasjúkrahús er að þar sé til staðar besta heilbrigðistækni og heilbrigðisþjónusta sem völ er á, á hverjum tíma. Þetta segir Gunnar Svavarsson, formaður byggingarnefndar og stjórnar Nýs Landspítala, en hann var í viðtali í fréttaskýringaþættinum Speglinum á Rás 2 í vikunni.
Fram kom að áætlað sé að reisa meðferðarkjarna, sjúkrahótel, rannsóknarhús og bílastæðahús á lóð Landspítalans en Gunnar segist vonast til að lokið verði við að reisa fyrsta áfanga spítalans árið 2019.
Lesa meiraFrumvarp um breytta fjármögnun lagt fram
Fjármálaráðherra hefur lagt fram frumvarp á Alþingi þar sem gert er ráð fyrir því að ríkið fjármagni byggingu nýs Landspítala. Horfið verði frá svokallaðri leiguleið þar sem gert var ráð fyrir að einkaaðilar reistu byggingar og ríkið tæki þær á leigu. Þó er heimilt að minni byggingar verði boðnar út og reistar samkvæmt leiguleiðinni.
Þá er lagt til að Nýr Landspítali ohf. starfi áfram að undirbúningi verkefnisins en að hlutverk þess verði þrengra en samkvæmt núgildandi lögum. Félagið muni undirbúa útboð fyrir byggingu spítalans en hafi ekki lengur heimild til að semja um að ríkið taki byggingarnar á leigu að loknu útboði.
Ráðherra verður hins vegar heimilt að ákveða að tilteknir skýrt afmarkaðir, minni byggingarhlutar, eða byggingar, séu boðnir út í formi langtímaleigu telji hann það þjóna heildarhagsmunum verkefnisins.
Lög um opinberar framkvæmdir gilda um verkefnið
Verði frumvarpið að lögum munu lög um skipan opinberra framkvæmda gilda um verkefnið. Alþingi mun því ákveða árlegar fjárveitingar til verkefnisins, eins og almennt gildir um opinberar framkvæmdir á vegum ríkisins.
Gera má ráð fyrir að um það bil 25% af fullnaðarhönnun verksins sé nú lokið. Áætlaður kostnaður fyrir fyrsta áfanga nýrra bygginga er 49,5 milljarðar. Gert er ráð fyrir að endurbætur á gömlu húsnæði muni kosta um 13 milljarða og kostnaður við tækjakaup nemi 12 milljörðum.
Nýtt háskólasjúkrahús rísi sem fyrst
Tryggja verður að nýtt háskólasjúkrahús rísi sem fyrst til að hægt verði að mæta nýjum tímum og auknum kröfum í heilbrigðisþjónustu, að því er fram kom í ræðu Kristínar Ingólfsdóttur, rektors Háskóla Íslands, við brautskráningu kandídata í dag.
Í ræðu sinni benti Kristín á að Háskóli Íslands og Landspítali hefðu starfað saman um árabil og menntað afburðahæft fólk til starfa í heilbrigðiskerfinu. Um það vitni frammistaða fólksins í kröfuhörðu námi hér heima, í framhaldsnámi erlendis og í starfi heima og í útlöndum á sjúkrastofnunum og vísindastofnunum.
Lesa meiraSjúkrahótel eða ríkishótel?
Í Viðskiptablaði Morgunblaðsins þann 31. janúar sl. er viðtal við Ásdísi Höllu Bragadóttur eiganda Sinnum, fyrirtækis sem sinnir m.a. öldruðum, fötluðum og langveikum, þar sem hún upplýsir að reksturinn gangi upp fyrir það að gífurlegum aga sé beitt í rekstrinum og að fyrirtækið skuldi ekki krónu. Meðal annars rekur Sinnum sjúkrahótel samkvæmt samningi við Sjúkratryggingar Íslands og í samvinnu við Landspítala sem sér um hjúkrunarþjónustu.
Í hlutarins eðli liggur að þeir sem hafa þekkingu og reynslu af hótelrekstri eru betur til þess fallnir að reka hótel en þeir sem hafa reynslu og þekkingu af sjúkrahúsrekstri. Flest almenn hótel eru í samkeppnisrekstri, en svo er ekki með sjúkrahótelið í Ármúla enda lúta sjúkrahótel á margan hátt öðrum lögmálum en venjuleg hótel. Mikilvægt er að fólk, einkum rekstraraðilar, geri sér grein fyrir hver er sá munur er.
Lesa meiraSjúkrahótel æ mikilvægari
Sjúkrahótel hafa víða um lönd orðið æ mikilvægari þáttur í þjónustu við sjúklinga og aðstandendur þeirra en mikilvægt er að þau séu nálægt sjúkrahúsum og helst innangengt þar á milli. Þetta er á meðal þess sem kemur fram í grein Jóhannesar M. Gunnarssonar, læknis og læknisfræðilegs verkefnastjóra NLSH, sem birtist í Morgunblaðinu á föstudag.
Lesa meiraSýking undirstrikar mikilvægi úrbóta
Yfirlæknir blóðlækningadeildar á Landspítalanum við Hringbraut segir að sýking sem greindist á deildinni í gær undirstriki mikilvægi úrbóta í húsnæðismálum LSH, að því er fram kemur í frétt Fréttablaðsins í gær. Deildinni hefur verið lokað vegna sýkingarinnar.
Deildin verður lokuð þangað til sýni hafa verið ræktuð úr öllum sjúklingum sem þar voru fyrir, og í það minnsta fram á mánudag. Hlíf Steingrímsdóttir, yfirlæknir á blóðsjúkdómadeild, segir að ónæmi fyrir sýklalyfjum einkenni þann stofn bakteríunnar sem greindist í gær. Hún sé hins vegar hluti af umhverfinu og yfirleitt ekki mjög skaðleg. Það sé hins vegar alvarlegt þegar hún komi upp á blóðlækningadeild spítalans.
Lesa meira