Bannmerkingar vegna aksturs á lóð Landspítala og við framkvæmdasvæðið

21. júní 2019

Athygli er vakin á því að virða bannmerki á innakstri á nokkrum stöðum á lóð Landspítala.

  • Einstefna er á akstri frá bílastæðum neðan gamla spítala upp að kringlu og kvennadeild.
  • Allur innakstur frá Eiríksgötu inn á lóð geðdeildar er bannaður.
  • Allur akstur frá Vatnsmýrarvegi, við jaðar framkvæmdasvæðis, upp á Gömlu Hringbraut er bannaður nema akstur strætisvagna.