Bílakjallari við meðferðarkjarna nýja Landspítalans -Verkís, Batteríið og T.ark hópurinn með lægsta tilboðið,47% af kostnaðaráætlun

11. febrúar 2021

Tilboð hafa verið opnuð hjá Ríkiskaupum í útboði nr. 21329 í fullnaðarhönnun á bílakjallara, sem verður byggður vegna meðferðarkjarna nýs Landspítala. Kostnaðaráætlun verksins er 166.961.700 kr. (án vsk), en tilboð bárust frá eftirtöldum hópum, sem þessi fyrirtæki leiða:

Verkís 78.750.000 47,17%
Efla 93.443.000 55,97%
Ferill Verkfræðistofa 93.730.000 56,14%
Kanon Arkitektar 93.800.000 56,18%
Mannvit 94.150.000 56,39%
ASK arkitektar ehf 95.900.000 57,44%
Yrki arkitektar 97.230.000 58,23%
VSB verkfræðistofa ehf. 111.300.000 66,66%
Corpus3 ehf. 112.000.000 67,08%

Bílakjallarinn er hugsaður eingöngu sem þjónustustæði fyrir ökutæki sjúklinga, aðstandendur og gesti spítalans. Um er að ræða 200 bílastæði og má líkja honum við bílakjallarann í Hörpunni sem er á tveimur hæðum. Gengið verður beint inn í sjúkrahúsið úr bílakjallaranum í sjálfvirka stiga, lyftur eða göngustiga. Einnig verður byggt á svæðinu 550 stæða bílastæðahús

.