Breyting á leiðakerfi Strætó vegna framkvæmda við Nýjan Landspítala

29. nóvember 2018

Vegna framkvæmda við Nýjan Landspítala hefur stjórn Strætó ákveðið að breyta akstri leiðar nr. 14.

 

Vegna framkvæmdanna verður Gömlu Hringbrautinni lokað fyrir umferð í byrjun janúar í að minnsta kosti 6 ár.

Þær stoppistöðvar sem þá munu detta út eru Ráðhúsið, Fríkirkjuvegur, Snorrabraut, BSÍ, Landspítalinn og Háskóli Íslands.