Fimm fyrirtæki metin hæf til að byggja nýjan Landspítala við Hringbraut

9. janúar 2020

Eftir yfirferð forvalsgagna hjá Ríkiskaupum, í forvali nr. 21068 vegna vegna uppsteypu á nýjum meðferðarkjarna við Hringbraut, hafa öll fimm fyrirtækin sem skiluðu inn þátttökubeiðni verið metin hæf til að taka þátt í útboði vegna uppsteypunnar.

Gerðar voru lágmarkskröfur um fjárhagslegt og tæknilegt hæfi.

Meðferðarkjarninn er stærsta byggingin í Hringbrautarverkefninu, um 70.000m².

Þau fyrirtæki sem skiluðu inn þátttökubeiðni og voru metin hæf eru:

Eykt ehf

Íslenskir aðalverktakar hf

Ístak hf

Rizzani De Eccher Island S.P.A, Rizzani De Eccher Ísland ehf, Þingvangur ehf.

ÞG verktakar ehf

 

Engin takmörkun var á fjölda bjóðenda í forvalinu

Meðferðarkjarninn er stærsta byggingin á skipulagsreit Hringbrautarverkefnisins og í henni verður þungamiðjan í starfsemi Landspítalans. Gerðar hafa verið sambærilegar kröfur um aðbúnað í meðferðarkjarna og í nýjum háskólasjúkrahúsum í nágrannalöndum okkar. Meðferðarkjarninn er hugsaður út frá starfsemi bráða- og háskólasjúkrahúss, með áherslu á einfalt og skýrt fyrirkomulag ásamt greiðum leiðum milli starfseininga.