Fjárlaganefnd Alþingis skoðar framkvæmdir við nýjan Landspítala

26. febrúar 2020

Fulltrúar frá fjárlaganefnd Alþingis skoðuðu í dag stöðu við framkvæmdir við nýjan Landspítala en nú standa yfir jarðvegsframkvæmdir við Hringbraut.

Auk fulltrúa fjárlaganefndar var fulltrúi frá stjórn NLSH ohf., framkvæmdastjóri Hringbrautarverkefnisins auk aðalverkefnastjóra FSR á verkstað.

Stefnt er að þvi að nýr meðferðarkjarni verði tekinn í notkun árið 2025.