Framkvæmdafréttir NLSH verið skráðar frá sumri 2018

11. apríl 2023

NLSH hefur frá upphafi lagt mikla áherslu á skilvirka upplýsingagjöf jafnt ytri sem innri. Auk reglulegra frétta á heimasíðu þá hafa reglulega verið gefnar út framkvæmdafréttir um stöðu verkefna félagsins alveg frá júní 2018.

Nýlega voru gefnar út framkvæmdafréttir nr. 85 og eru þær sendar til margra aðila bæði innan tæknigeirans og einnig til fjölmiðla.

Framkvæmdafréttir NLSH eiga eftir að vera góð heimild um byggingasögu félagins þegar síðar verður.