Framkvæmdir við bílastæði norðan Eirbergs og geðdeildar

23. desember 2019

Framkvæmdir halda áfram við gerð nýrra bílastæða norðan við Eirberg og geðdeild.

Búið er að jarðvegsskipta og malbika gömlu malastæðin sem voru norðan geðdeildar. Búið er að opna nýju stæðin, en eftir á að helluleggja göngustíga meðfram stæðunum.

Allar gönguleiðir á svæðinu verða uppfærðar með nýjum umferðareyjum og hellumerkingum fyrir sjónskerta.

Gjaldskylda verður á bílastæðunum að framkvæmdum loknum og eru þau ætluð sjúklingum og aðstandendum.