Fréttir af uppsteypu meðferðarkjarnans

2. nóvember 2022

Helstu verkþættir sem nú eru í gangi við uppsteypuna eru við mótauppslátt, járnabendingu, eftirspennu, fyllingar og lagnir í grunni.

„Áfram er góður gangur í uppsteypu meðferðarkjarnans og fyrsta gólfplata 4. hæðar í vesturhluta var steypt í október og eykst þar með forskotið á aðra byggingarhluta á svæðinu. Uppsteypa veggja og súlna efri kjallara er að klárast. Uppsteypu 1. áfanga tengigangs sunnan meðferðarkjarna er lokið og unnið er að því að fullklára hann að utan og fylla að. Aðrar fyllingar á svæðinu eru við tengiganga norðan meðferðarkjarna, þar sem verið er að fylla undir botnplötur við efri kjallara og undirbúa áframhaldandi uppsteypu,“segir Árni Kristjánsson staðarverkfræðingur Nýs Landspítala.