Góður gangur í framkvæmdum við nýtt sjúkrahótel við Hringbraut

14. febrúar 2016

Framkvæmdir við byggingu nýs sjúkrahótels á Landspítala Hringbraut ganga vel. Nú er unnið við að grafa fyrir mannvirkjum og í framhaldinu er stefnt að því að fyrsta steypa fyrir tækni- og umferðargöngum verði gerð í kringum 24. febrúar.

Opnað verður fyrir aðalinngang kvennadeildar Landspítala þann 19.febrúar.

Að því loknu verður hafist handa við lagnir í götum og gera nýja aðkomu að núverandi sjúkrahúsi og fyrirhuguðu sjúkrahóteli.

NLS Saga sér um byggingu nýja sjúkrahótelsins sem verður tekið í notkun árið 2017.