Góður gangur í jarðvinnu við rannsóknahús

4. febrúar 2022

Jarðvinna við grunn rannsóknahússins miðar vel áfram.

 „Sprengingar hafa gengið vel og hafa mælingar á titringi vegna sprenginganna verið allar innan marka,“ segir Bergþóra Smáradóttir verkefnastjóri hjá NLSH.

„Verktaki hefur leyfi til að sprengja þrisvar sinnum á dag, virka daga, kl. 11:00, 14:30 og 17:30. Ásamt sprengingum er verktaki einnig að keyra sprengda grjótinu burt af svæðinu, en hann sinnir því á milli sprengitíma ásamt að undirbúa næstu sprengingar,“ segir Bergþóra.