Heilbrigðisráðherra, Willum Þór Þórsson, tók fyrstu skóflustunguna að nýju bílastæða – og tæknihúsi Nýs Landspítala

19. maí 2022

Bílastæða- og tæknihúsið ásamt bílakjallara glæsileg viðbót

Heilbrigðisráðherra, Willum Þór Þórsson, tók í dag fyrstu skóflustungu að nýju bílastæða – og tæknihúsi (BT húsi) ásamt Pétri Guðmundssyni stjórnarformanni Eyktar. Einnig tóku fulltrúar starfsmanna, þær Rannveig Rúnarsdóttir frá LSH og Þórana Elín Dietz frá HÍ einnig skóflustungu að húsinu.

Nýtt bílastæða- og tæknihús verður um 19.000 fermetrar að stærð með um 500 bílastæði. Auk þess eru um 200 hjólastæði í húsinu en einnig eru 200 bílastæði í bílakjallara við meðferðarkjarnann fyrir sjúklinga og aðstandendur.

Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra: “Það er ánægjulegt að enn bætast við byggingar sem eru á framkvæmdastigi hér í þessari mikilvægu uppbyggingu við nýjan Landspítala. Vel hefur tekist til hér við framkvæmdir á svæðinu og bílastæða – og tæknihúsið er áfangi á þessari vegferð að nýjar byggingar hér á svæðinu myndi eina heild,“.

 

Gunnar Svavarsson framkvæmdastjóri Nýs Landspítala: „Jarðvinnu á rannsóknahúsinu er lokið og nú strax hefst nýr áfangi við jarðvinnu á bílastæða – og tæknihúsinu. Eftir alútboð var samið við Eykt um bæði hönnun og verkframkvæmd og markar því dagurinn í dag eitt af mörgum mikilvægum skrefum í hraðri uppbyggingu hér við Hringbraut,“.

Runólfur Pálsson forstjóri Landspítala: „Það er ánægjulegt að sjá hversu góður skriður hefur verið á verkefninu um nýjan Landspítala. Við fögnum hverjum áfanga, stórum sem smáum, á þessari vegferð því takmarkið færist nær. Bílastæða- og tæknihúsið er mikilvægur hlekkur í þessu stóra verkefni,“.

Pétur Guðmundsson, stjórnarformaður Eyktar ehf: “Við hjá Eykt þekkjum vel til Hringbrautarverkefnisins, en við erum núna að steypa upp meðferðarkjarnann, þar er allt á fullri ferð. Samstarfið gengur vel við Nýja Landspítalann og húsið sem nú fer af stað er enn ein ný áskorun,”.