Hugað að farsímasendingum á framkvæmdasvæðinu

19. apríl 2023

Um hríð hefur verið ljóst að huga þyrfti að breytingum á farsímasendingum á byggingasvæðinu. Þar kemur til að fjöldi senda er núna á Læknagarði og þegar byggingar rísa allt um kring, og sjálfum Læknagarði breytt, verður að skipuleggja dreifingasvæðið upp á nýtt. Því hefur NLSH haft frumkvæði að vinnu sem núna stendur yfir og er ætlað að taka við núverandi fyrirkomulagi með nýrri staðsetningu farsímasendanna. Þetta verk verður unnið í áföngum og er sá fyrsti núna yfirstandandi.