Jarðvinna við rannsóknahús fer senn að ljúka

30. mars 2022

„Vel hefur gengið í jarðvinnu rannsóknahússins og fer senn að ljúka,“ segir Bergþóra Smáradóttir verkfræðingur og verkefnastjóri hjá framkvæmdasviði NLSH.

„Okkar áætlanir eru að framkvæmdin klárist að fullu á næstu vikum. Verktaki vinnur að því að keyra allt laust efni af svæðinu ásamt því að setja upp bergstyrkingar meðfram grunninum, þar sem þörf er á slíku. Framkvæmdin hefur gengið vel þrátt fyrir erfitt og rysjótt veðurfar í vetur,“ segir Bergþóra.