Læknafélagið ályktar um nýjan spítala

24. október 2012

Aðalfundur Læknafélags Íslands, sem haldinn var á Akureyri um helgina, ítrekar ályktun sína frá síðasta aðalfundi þess efnis að byggður verði nýr landspítali. 

„Nýr spítali sem uppfyllir nútíma kröfur um húsnæði, aðstöðu og aðgengi fyrir sjúklinga, aðstandendur og starfsfólk mun auka möguleika á að veita bestu heilbrigðisþjónustu sem völ er á,“ segir í ályktuninni.