Lokafrágangur nýs hjólaskýlis

5. desember 2019

Búið er að byggja hjólaskýli við vesturenda bílastæðis við eldhús– og rannsóknastofubyggingu Landspítala.

Einungis er eftir að ganga frá tengingum aðgangs, myndavéla og öryggiskerfa við kerfi LSH.

Að því loknu verður skýlið tekið í notkun.

Hjólaskýlið er ætlað fyrir allt að 64 hjól og einnig verður aðstaða til hjólaviðgerða og loftpumpa til staðar.

Nýja hjólaskýlið verður kærkomið fyrir þá starfsmenn LSH sem nýta sér það að koma hjólandi til vinnu.