Lokun gömlu Hringbrautar 8. febrúar

14. febrúar 2019 Hringbrautar verkefnið

Frá og með 8.febrúar verður Gömlu Hringbraut lokað vegna jarðvegsframkvæmda við byggingu nýs meðferðarkjarna sem er einn verkhluti Hringbrautarverkefnisins.

Áætlað er að að byggingu nýs meðferðarkjarna muni ljúka 2024.

Ásbjörn Jónsson verkefnastjóri NLSH ohf.:

Dagurinn 8.febrúar markar viss tímamót í uppbyggingu nýs meðferðarkjarna Landspítala við Hringbraut. Mikilvægt er að almenningur kynni sér vel þær breytingar sem verða á akstri bæði einkabíla og strætisvagna um svæðið í nálægð við Landspítala.

Nauðsynlegt er að virða þær merkingar sem komið verður upp tengt þessari stóru framkvæmd og þær hjáleiðir sem munu verða sökum lokunarinnar.

Við hjá NLSH þökkum fyrir þolinmæði vegfarenda, sjúklinga, starfsmanna Landspítala og þeirra sem leið eiga um framkvæmdasvæðið.

Framkvæmdir hafa gengið vel og í vetur mun meginþungi framkvæmda vera í mikilli nálægð við starfsemi Landspítala en eftir þvi sem verkinu miðar áfram þá mun framkvæmdaþunginn færast fjær starfseminni.

Áhrif á akstur strætisvagna:

Með tilkomu lokunar Gömlu Hringbrautar munu verða breytingar á akstri strætisvagna. 

Akstur leiða nr. 1,3,5,6 og 15 vegna framkvæmdanna breytist. Breytingar á akstri á leið 14 og tímatöflum á leiðum 28 og 75 tóku hinsvegar gildi frá byrjun janúar.

Sjá nánar um akstur strætisvagna í nágrenni Landspítala á vef Strætó.

Þar er að finna allar upplýsingar um breytingar á akstri strætó ásamt nýjum leiðakortum og myndbandi um helstu breytingar af þessari framkvæmd.

Áhrif á gönguleiðir á svæðinu:

Jarðvegsframkvæmdirnar hafa einnig mikil áhrif á gönguleiðir á framkvæmdasvæði nýbygginga í Landspítalaþorpinu. Miklar gatnaframkvæmdir og stækkun athafnasvæðis verktaka munu hafa í för með sér röskun á gönguleiðum.

Nánari upplýsingar um breytingar á gönguleiðum eru útskýrðar á eftirfarandi myndbandi:

https://vimeo.com/314255862