• New national hospital

Meira um nýjan Landspítala

22. október 2011

Um fátt er eins mikið rætt um þessar mundir og nýbyggingu Landspítalans sem áætlað er að rísi við Hringbraut á næstu misserum og sýnist sitt hverjum. Hæst heyrist í efasemdaröddum; að við þurfum ekki meiri steypu, að flest heilbrigðisstarfsfólk sé farið til útlanda og að staðarvalið sé afleitt.

En hvers vegna þurfum við nýjan Landspítala? Ein aðalástæðan er sú að undanfarna áratugi hefur mikil þróun átt sér stað í heilbrigðisvísindum sem kallar eftir því að sjúklingum standi einbýli með salerni til boða. Sjúklingar eru mun veikari en áður og því viðkvæmari fyrir sýkingum, sem stundum fylgja öðrum sjúklingum. Núverandi húsnæði Landspítalans er reist fyrir einfaldari heilbrigðisþjónustu heldur en rekin er í dag og fullnægir ekki þörfum mikið veikra einstaklinga.  

Það er gríðarlega mikilvægt að sameina bráðaþjónustu spítalans á einum stað, en nú er hún veitt á tveimur stöðum. Núverandi fyrirkomulag er slæmt, það ógnar öryggi sjúklinga og er dýrt. Með sameiningu fæst hagræðing í rekstri og meiri skilvirkni í þjónustu við sjúklinga.  

Það er langt síðan framtíðarstaðsetning Landspítalans var ákveðin og með það í huga var Barnaspítali Hringsins byggður og Hringbrautin færð. Ástæður staðarvalsins eru m.a. nálægð við háskólasvæðið og fjöldi nothæfra húsa sem fyrir eru á Landspítalalóðinni. Áhugavert er að 25% starfsmanna spítalans búa í göngufæri við hann og fjölmargir geta ferðast þangað á hjóli á tiltölulega stuttum tíma. Ég er sannfærð um að á komandi árum munu æ fleiri nýta sér vistvænan og heilsusamlegan ferðamáta til þess að komast til vinnu á Landspítala. Engu að síður er viðbúið að á annatímum verði þung umferð í kringum spítalann og það er áhyggjuefni.  

Fyrir nokkrum árum voru uppi áætlanir um að byggja 120.000 m² sjúkrahús við Landspítalann og rífa talsvert af eldri húsum á svæðinu. Eftir efnahagshrunið voru allar áætlanir endurskoðaðar og lögð áhersla á að sameina bráðastarfsemina á einum stað. Nú á að byggja um 66.000 m² og nýta og lagfæra eldri byggingar. Það er því enginn bragur kenndur við árið 2007 á nýja Landspítalanum sem rísa á við Hringbraut, heldur er hagkvæmni og skynsemi höfð að leiðarljósi.  

Fjölmargt heilbrigðisstarfsfólk í fremstu röð er enn að störfum á Landspítalanum. Þar er verið að hjúkra, líkna og lækna, rannsaka og kenna. Með nýjum Landspítala munum við geta sinnt störfum okkar betur en áður og aðbúnaður sjúklinga verður mun betri. Þrátt fyrir tímabundna efnahagserfiðleika megum við ekki hætta að hugsa til framtíðar.