Milt veður til framkvæmda
Líklega hefur fátt meira að segja varðandi byggingaframkvæmdir en gott tíðarfar. Vetrartíðin getur sveiflast öfganna á milli, frá rigningu og hlýindum yfir í bylji og storma. Veðurstofan hefur tekið saman yfirlit varðandi veður í nóvember og í Reykjavík var sá mánuður einna hlýjastur frá upphafi skráninga og það nær reyndar til mjög margra staða um landið. Meðalhiti í Reykjavík var tæpum þremur gráðum hærri í nóvember en í meðalári og hæsti hiti mældist þann 13. nóvember og hann var þá 12,7 stig. Eins og nærri má geta hefur þessi milda tíð verið hvati til verkefnisins en á myndinni með þessari frétt má sjá fólk að störfum við að steypa gólfplötu í meðferðarkjarnanum en myndin var tekin þann 2. desember síðastliðinn. Sjá nánar hérna .