Myglusveppur á Landspítala

9. janúar 2013

Morgunblaðið greindi frá því í dag að myglusveppur hafi komið upp í nokkrum herbergjum í byggingu Landspítalans við Hringbraut. Björn Zoëga, forstjóri Landspítalans, segir að verið sé að meta það hvort loka þurfi herbergjum og legurýmum.

Um er að ræða elstu byggingu Landspítalans við Hringbraut en í henni er meðal annars starfsemi gjörgæslunnar, að því er fram kemur í frétt Morgunblaðsins og á mbl.is.

„Myglan fannst nýlega og kom upp vegna þess að gluggarnir hafa lekið í nokkurn tíma. Við höfum ekki haft fé til þess að endurnýja húsnæðið. Að vísu stóð til að gera við helming glugganna í þessu húsnæði í sumar,“ segir Björn í Morgunblaðinu í dag. 

Fréttin á mbl.is