NLSH í fyrsta sæti í golfmóti Deloitte

28. ágúst 2017

24. ágúst síðastliðinn var haldið golfmót á vegum Deloitte með fjölda þátttakenda frá fyrirtækjum og stofnunum.

Fyrirkomulag mótsins var þannig að keppt var í liðum og hvert lið var skipað fulltrúum frá nokkrum fyrirtækjum.  Ásbjörn Jónsson var fulltrúi NLSH í keppninni.

Úrslit urðu þannig að sameiginlegt lið frá NLSH, Alvotech og Landsbankanum sigraði í keppninni.

Á myndinni eru sigurvegarar mótsins Guðjón V. Ragnarsson og Sigurjón Þ. Sigurjónsson frá Landsbankanum, Ragna Björk Ólafsdóttir frá Alvotech og Ásbjörn Jónsson frá NLSH.