Nýr Landspítali óskar eftir tilboðum vegna framkvæmda við sjúkrahótel

8. september 2015

Nýr Landspítali hefur auglýst eftir tilboðum vegna framkvæmda við sjúkrahótel vegna byggingar Nýs Landspítala. Um er að ræða lóðaframkvæmdir vegna gatna, göngustíga, bílastæða og grænna svæða ásamt jarðvinnu fyrir sjúkrahótelið. Samhliða er óskað eftir tilboðum í byggingu sjúkrahótels sem er hluti af fyrsta áfanga uppbyggingar Landspítala við Hringbraut. Sjúkrahótelið mun rísa norður við kvennadeild Landspítala og tengjast Barnaspítala og kvennadeild um tengigang.  Sjúkrahótelið verður fjórar hæðir með kjallara og tengigöngum og eru áætluð verklok í júní 2017.

Hægt er að nálgast tilboðsgögn hjá Ríkiskaupum frá og með 9.september og opnun tilboða verður þann 20.október næstkomandi.

Nánar á vef Ríkiskaupa