Nýr Landspítali semur við Verkís, Batteríið og T.ark um fullnaðarhönnun á bílakjallara undir Sóleyjartorgi

15. apríl 2021

Skrifað hefur verið undir samning á milli NLSH og Verkís, Batteríið og T.ark um fullnaðarhönnun á bílakjallara við nýjan Landspítala. Bílakjallarinn mun rísa undir Sóleyjartorgi, austan við meðferðarkjarna og sunnan við Gamla Spítala.

Bílakjallarinn er hugsaður eingöngu sem þjónustustæði fyrir ökutæki sjúklinga, aðstandenda og gesta spítalans. Um er að ræða 200 bílastæði og má líkja honum við bílakjallarann í Hörpunni sem er á tveimur hæðum. Gengið verður beint inn í sjúkrahúsið úr bílakjallaranum í sjálfvirka stiga, lyftur eða göngustiga. Þess má geta að einnig verður byggt á svæðinu 550 stæða bílastæðahús.

Forhönnun bílakjallarans liggur fyrir og verklok eru áætluð í byrjun árs 2022. Gert er ráð fyrir að uppsteypa kjallarans sé samhliða uppsteypu meðferðarkjarnans og uppsteypunni sé að fullu lokið 2023.