• New national hospital

Nýr Landspítali: Sparnaður fyrir þjóðfélagið á erfiðum tímum

13. janúar 2012

Rekstrarlegur ávinningur sameiningar starfsemi Landspítala í Fossvogi og við Hringbraut með nýbyggingum spítalans er áætlaður 2,6 milljarðar á hverju ári. Með einfaldri deilingu má sjá að töf á nýbyggingu kostar samfélagið 7,1 milljón króna á hverjum sólarhring.

Margþættur ávinningur af nýbyggingu Landspítala
Í tvígang hafa reyndir erlendir rekstrar- og byggingaaðilar verið fengnir til að reikna hugsanlegan rekstrarábata af nýbyggingu Landspítala. Notuð hefur verið mismunandi nálgun við útreikninga en allt ber að sama brunni; það næst árleg rekstrarleg hagræðing upp á 2,6 milljarða hið minnsta.

Í hverju felst þessi mikli ávinningur? Tvöföldun á sjúkrahússtarfsemi annars vegar á Hringbraut og hins vegar í Fossvogi er dýr. Rannsóknarstofur, myndgreining, bráðamóttökur, skurðstofur, gjörgæsla, og margt fleira er á báðum stöðum. Það er sóun.

Einmenningsstofur með salerni og sturtu fyrir hvern sjúkling eru talin auka byggingarkostnað spítalans um 5%. Á móti kemur mikill rekstrarsparnaður sem felst í bættum meðferðarárangri. Spítalasýkingum á deild með einbýlum sjúklinga fækkar um allt að 45%. Meðferð slíkra sýkinga er gífurlega kostnaðarsöm vegna þess hve lyfin eru dýr og iðulega þarf að loka rekstrareiningum um lengri eða skemmri tíma meðan verið er að uppræta slíkar sóttkveikjur í umhverfinu. Legutími sjúklinga sem í þessu lenda lengist oft mikið og stöku sjúklingar lifa þessar sýkingar ekki af. Mistökum varðandi lyfjagjöf, sem eru algengustu mistök á spítölum fækkar og er dæmi um 70% fækkun slíkra mistaka á deildum þar sem eingöngu eru einbýli. Minniháttar inngrip, skoðanir og viðtöl geta farið fram á sjúkrastofunni, sem fækkar mjög öllum flutningum á sjúklingum sem allt sparar tíma og fyrirhöfn.

Hægt að helminga göngutíma starfsfólks með betri hönnun og tæknilausnum
Í eldra húsnæði er samhengi hinna einstöku starfseininga og flæði óhagstætt. Miklu skiptir að allar ferðaleiðir starfsmanna og sjúklinga séu eins stuttar og mögulegt er og að ferðir og flutningar séu í lágmarki. Á hefðbundnum legudeildum verja starfsmenn í umönnun tæplega 30% af vinnutíma sínum til gangs til eða frá sjúklingi. Með bestu hönnun er hægt að minnka þennan tíma um nær því helming. Fullkomin tækni til flutninga s. s. sendingar sýna til rannsóknarstofa eða lyfja frá sjúkrahúsapóteki með rörpósti og sjálfvirkir flutningsvagnar fyrir lín- og matarflutninga sparar tíma fólks og eykur auk þess öryggi. Sama gildir um fullkomna upplýsingatækni og starfsaðstöðu almennt. Má þar nefna bein rafræn lyfjafyrirmæli frá legudeildum til sjúkrahúsapóteks sem tekur til sjálfvirkt og sendir strikamerkt og pökkuð lyf fyrir hvern sjúkling til sjúkradeildar á minna en 5 mínútum. Sorp er sent í sogkerfi til miðlægrar sorpstöðvar spítalans. Allt sparar þetta mannafla, flýtir verkum og eykur öryggi.

Nýbygging Landspítala þolir ekki frekari bið
Fjárfesting í húsnæði nýs Landspítala er nú metin á um 40 milljarða. Endurnýjun tækjabúnaðar upp á um 10 milljarða er óumflýjanleg á næstu 10 árum sama hvernig húsnæðismálum verður háttað. Það er ekki valkostur að gera ekkert í húsnæðismálum Landspítala. Samanburður valkosta sýnir að það er hagstæðara fyrir þjóðarbúið að ráðast í nýbygginguna og njóta hagkvæmninnar frekar en að vera áfram með óhagkvæman rekstur í núverandi byggingum með lágmarks endurbótum á þeim. Nýbygging Landspítala þolir enga frekari bið. Fyrir því liggja sterk fjárhagsleg, samfélagsleg og ekki minnst fagleg rök.