• New national hospital

Nýtt háskólasjúkrahús rísi í Fossvogi

19. október 2011

Sitt sýnist hverjum um nýtt sjúkrahús, sem ætlunin er að reisa við Hringbraut. Hingað til hafa helstu óánægjuraddir borist frá íbúum Þingholtanna auk áhugamanna um skipulagsmál, en verkefnið sætir nú æ meiri andstöðu meðal heilbrigðisstarfsfólks, þó minna hafi farið fyrir henni opinberlega. 

Þeim sem til þekkja kemur þessi gagnrýni ekki á óvart, því margsinnis hefur verið bent á það óhagræði sem felst í því að byggja við hinar lágreistu og ósamstæðu byggingar við Hringbraut, auk þess sem strangar takmarkanir eru á hæð nýbygginga, sem mun sjálfkrafa koma niður á öllu innra skipulagi þeirra. Hefur þetta m.a. í för með sér að enn skal nátengdri starfsemi komið fyrir í aðskildum byggingum, tengdum löngum neðanjarðargöngum. 

Árið 2001 gerðu danskir ráðgjafar viðamikla úttekt á framtíðarskipulagi Landspítalans. Var í framhaldinu mælt með því að sameinað sjúkrahús risi í Fossvoginum enda var Borgarspítalinn talinn hentugri til stækkunar, þó sjálfsagt væri að reka hluta starfseminnar áfram á Hringbraut. Fjarlægðin frá Háskóla Íslands var ekki talin skipta máli. 

Þó að lóðin hafi minnkað frá því að sú niðurstaða lá fyrir rúmar hún enn sameinað sjúkrahús og rúmlega það, auk þess sem hún liggur einstaklega vel við miðju allra útkalla Stór-Reykjavíkursvæðisins og helstu meginsamgönguæðum, ólíkt Hringbrautinni, en nokkrar mínútur geta skipt sköpum þegar líf sjúklings hangir á bláþræði. Tiltölulega auðvelt er að bæta við nýjum samgöngutengingum inn á lóðina auk þess sem deiliskipulag frá 1973, sem heimilar nægjanlegt byggingarmagn innan lóðarinnar, er enn formlega í gildi. 

Uppbygging bráðaþjónustu undanfarin ár hefur átt sér stað í Fossvoginum og talsverð starfsemi verið færð þangað frá Hringbraut. Húsnæðið hefur nýlega verið endurinnréttað og stækkað og aðstaðan því batnað til muna og vantar ekki mikið upp á að stærstur hluti bráðaþjónustunnar sé samankominn þar. Með útsjónarsemi og minna byggingarmagni er sennilega hægt að ná fram stórum hluta þeirrar rekstrarhagræðingar sem sameining spítalanna á að hafa í för með sér. 

Meðfylgjandi tillögur sýna glöggt hvaða uppbyggingarmöguleikar eru enn fyrir hendi við Borgarspítalann, en kostir svæðisins felast í hve auðvelt er að bæta við núverandi húsnæði í mörgum smærri áföngum með óteljandi möguleikum á innanhússtengingum á allt að átta hæðum, sem skilar sér í meira hagræði og auknu öryggi sjúklinga. 

Miklir fjármunir hafa komið við sögu undirbúnings fyrirhugaðs Háskólasjúkrahúss og hefur verið lagt í mikla hugmyndavinnu, sem ber að virða. Sá mikli kostnaður er þó einungis brot af þeim upphæðum sem sparast ef rétt er haldið á spöðunum við uppbyggingu sameinaðs sjúkrahúss allra landsmanna. Að okkar mati er verið að ráðast í óheyrilega dýra framkvæmd undir fölsku nafni hagræðingar og uppbyggingar heilbrigðisvísinda. Við teljum að í raun sé þessu öfugt farið og verkefnið muni að lokum soga til sín gífurlegt fjármagn beint út úr heilbrigðis- og menntakerfinu. 

Núverandi yfirvöld ættu að endurskoða þessa misráðnu ákvörðun fyrrverandi heilbrigðisráðherra og skoða aðra kosti en Hringbrautina. Það er ekki of seint.