Nýtt húsnæði Efri Póll tekið í notkun
Nýlega var nýtt húsnæði, Efri Póll, tekið í notkun á vinnubúðareit. Þar munu starfsmenn EFLU og Cowi Ísland vera með aðsetur.
Cowi Ísland mun sinna verkeftirliti norðan Burknagötu, við meðferðarkjarna og bílakjallara undir Sóleyjartorgi. EFLA mun sinna eftirliti sunnan Burknagötu við rannsóknahús, bílastæða og tæknihús, hús Heilbrigðisvísindasviðs HÍ og tengiganga milli bygginga.
Starfsmenn eru í óða önn að koma sér fyrir og er starfsemin þegar hafin.
Efri mynd: Starfsmenn frá EFLU
Neðri mynd: Starfsmenn frá Cowi Ísland