Öflugt kælikerfi í nýbyggingunum

23. febrúar 2022

Í bílastæða- og tæknihúsinu sem verður reist samhliða öðrum byggingum, verður að finna öflugt kælikerfi sem mun þjóna meðferðarkjarnanum og rannsóknahúsinu. Kælilögnin verður lokuð og notuð til að kæla bæði rými og tæki en líka til kælingar á svonefndum eimsvölum fyrir kælingu á tölvubúnaði og rannsóknartækjum. Á þaki bílastæða- og tæknihússins verður kælikerfum komið fyrir en einnig verða varmaskiptar í kjallaranum.