Samanburðarmyndatökur innanhúss á byggingastigi

7. október 2022

Eins og vegfarendur hafa tekið eftir eru hæðir meðferðarkjarnans farnar að blasa við en gangur framkvæmdarinnar er með ágætum. Eins og greint hefur verið frá á þessum vettvangi eru stöðugar myndatökur af utanverðu húsinu og myndskeið sem eru tekin vikulega eru á YouTube-rás NLSH. Þegar vinna innan byggingarinnar hefst tekur við næsti fasi sem eru myndatökur með myndavélum sem hafa 360 gráðu sjónarhorn. Ef sama leið er endurtekið farin innan hæðanna fæst samanburður við breytingar í tíma en einnig verður hægt að bera myndirnar saman við teikningar og líkön. Bygging sjúkrahúss er afar mikil og flókin framkvæmd með tilliti til lagna og margskonar kerfa og myndatökur því nauðsynlegar á framkvæmdatímanum.