Samkomulag um verkskil sjúkrahótels

2. desember 2018

NLSH ohf. hefur náð samkomulagi frá og með 30. 11.2018, við Munck Íslandi ehf. um verkskil á sjúkrahóteli, gatna- og lóðagerð í samræmi við útboð nr. 20116, „Nýr Landspítali við Hringbraut – Götur, veitur, lóð og sjúkrahótel“.

Framkvæmdum á sjúkrahótelinu og lóð þess samkvæmt verksamningi og útboðsgögnum er ekki lokið.

Þá er ágreiningur milli aðila um ýmis atriði er varða samningssamband þeirra, þ.á m. um tímasetningu umsaminna verkloka, skilaástand og ábyrgð á athugasemdum vegna verklokaúttektar, orsakir á töfum verksins, tafabætur, réttmæti reikninga, skaðabætur vegna tafa, verkgæði, annmarka á verkinu o.fl.

Í ljósi ágreinings um verklok og afhendingarstig framkvæmda óskaði NLSH ohf. eftir því í samræmi við heimildir sínar að verkskil og afhending verktaka á sjúkrahótelinu og þeirri lóð sem framkvæmdir lutu að samkvæmt verksamningi og útboðsgögnum, færi fram nú þegar.

Nú í kjölfar afhendingar getur verkkaupi lokið því sem eftir stendur af verkframkvæmdum án þess að leysa þurfi fyrst úr fyrrgreindum ágreiningi aðila sem rekja má til samningssambands þeirra.

Afhending sjúkrahótels og lóðar fór fram 30. nóvember 2018.

NLSH ohf. og Munck Ísland ehf. hafa einnig gert með sér gerðardómssamning þar sem kveðið er á um að gerðardómur fjalli með bindandi hætti um öll þau ágreiningsefni sem risið hafa og rísa kunna vegna verksamningsins.

NLSH ohf. mun við yfirtöku á húsinu og lóð, ganga til fullnustu þeirra verka sem nauðsynlegt er til að koma húsinu í rekstrarhæft ástand, en stefnt er að því að allur innbúnaður verði kominn í húsið við árslok og húsið tilbúið til afhendingar til stjórnvalda í upphafi næsta árs.