Staða byggingaframkvæmdanna við árslok 2021

4. janúar 2022

Þegar nýrri myndin er skoðuð má sjá hversu geysilega mörg handtök liggja að baki og neðri kjallari meðferðarkjarnans farinn að taka á sig mynd. Margir byggingakranar gnæfa yfir húsgrunninn og greinilegt hversu miklar járnabindingar eru í grunni og veggjum. Rík áhersla er lögð á snyrtilegt vinnusvæði en rétt utan myndar, til hægri, er þvottastöð sem vörubílar verða að fara í gegnum þegar ekið er með farm út fyrir vinnusvæðið. Búið er að setja útsýnisglugga þar sem sjá má yfir svæðið, en hann er að finna á girðingunni norðanmegin við Kvennadeild. Á myndinni má greina hann rétt ofan við tengiganginn til hægri.