Starfsmenn Landspítala heimsækja framkvæmdasvæðið

16. nóvember 2022

Þann 16.nóvember komu nokkrir núverandi og fyrrverandi starfsmenn Landspítala í heimsókn og fengu kynningu á verkefnum Nýs Landspítala hjá Ingólfi Þórissyni sviðsstjóra og Gísla Georgssyni, verkefnastjóra á tækni- og þróunarsviði.

Að því loknu var farið í skoðunarferð um framkvæmdasvæðið undir stjórn Steinars Þórs Bachmann, verkefnisstjóra á framkvæmdasviði