• New national hospital

Stjórnvöld skulda velferðarkerfi

1. desember 2006

Á þessu ári hafa sjúklingafélögin, Félag MND - sjúklinga; Heilaheill; LAUF - Landssamtök áhugafólks um flogaveiki; MG - félag Íslands; MS - félag Íslands og Parkinsonsamtökin, [Vinnuheitið SAMTAUG] haft með sér samráð og knúið dyra hjá yfirstjórn Landspítala - háskólasjúkrahúss (LSH).

Er það gert í því skyni að auka skilning milli aðila, er hafa lýst yfir vilja sínum með skriflegu samkomulagi til að eiga samstarf með skipulegum hætti um mál sem varða skjólstæðinga félaganna og LSH. Þetta hefur gengið vel eftir og af skiljanlegum ástæðum hefur ýmislegt komið í ljós sem betur mætti fara í okkar heilbrigðiskerfi, sem því miður er komin slagsíða á. Þetta er ekki síst vegna þess að innan félaganna er að finna fagaðila, sem ýmist vinna ennþá á sjúkrahúsunum eða eru komnir á eftirlaun. Þá er verið að tala um að vekja athygli stjórnvalda t.a.m. á ýmsum hagkvæmum atriðum er leitt gætu til frekari sparnaðar í heilbrigðiskerfinu, sé til lengri tíma litið. Hollvinir Grensásdeildar hafa vakið athygli á nauðsyninni á t.d. að byggja nýja a.m.k. 1000 m² álmu við deildina og mætti með því spara mikið fé til frambúðar. Þá hefur komið í ljós að loknu málþingi Heilaheilla í október s.l., að með því að setja á laggirnar sérstaka deild innan sjúkrahúsanna, er hefði sérhæfðu starfsfólki í heilablóðfallssjúkdómum á að skipa, væri hægt að bjarga mannslífum. Þá hefur komið í ljós að staða Sjálfsbjargar, að nýloknum sambandsstjórnarfundi um síðustu helgi, er nokkuð breytt, Sjálfsbjörg þarf að ganga í endurnýjun lífdaga og þá einnig staða fatlaðra í okkar samfélagi. Þá er eftir að minnast á málefni aldraðra o.s.frv.

Í stuttu máli, það verður að segjast eins og er að sú afvegaleidda umræða um "hátæknisjúkrahús" hefur nokkrum sinnum skotið upp kollinum og tafið fyrir umræðunni. Það hefur heyrst sú skoðun að nota frekar nokkra milljarða af sölu Símans til að bæta þá þjónustu sem nú er, heldur en að byggja nýtt sjúkrahús. Ég held að menn ættu aðeins að staldra hér við og ég er ekki búinn að mynda mér skoðun á málinu. En þar sem við erum sammála um að bæta þjónustuna sem nú er, þá ættum við að horfa til framtíðar og styðja hugmyndina um nýtt og veglegt sjúkrahús, en koma þeim skilaboðum til stjórnvalda að þau skuldi þjóðinni velferðarkerfið og taki peninganna annarsstaðar frá. Þannig geta þau leiðrétt þann halla sem nú er.