• New national hospital

Svar við bréfi Sighvats

25. maí 2012

Í stuttri grein Sighvats Björgvinssonar í Fréttablaðinu 24. maí sl. þar sem hann þakkar fyrir svar mitt við grein hans í sama blaði mánudaginn 21. maí ber hann enn fram nokkrar spurningar sem sjálfsagt er að svara. 

1. Hefur verið vel og nákvæmlega skilgreint hvaða þjónustu á að veita, hvað til hennar þarf af húsnæði, sérmenntuðu starfsliði, tækjum og búnaði? Hvað kostar að kaupa og hvað kostar að reka? Hvar er þessar upplýsingar að finna? 

Svar: Já, að sjálfsögðu hefur verið gengið út frá skilgreindri þjónustu sem miðast í stórum dráttum við þá stöðu sem Landspítali hefur nú þegar sem sérhæft sjúkrahús fyrir allt landið og nærþjónusta fyrir höfuðborgarsvæðið auk þess að vera háskólasjúkrahús landsins. Umfangsmikil þarfagreiningarvinna fór fram í upphafi. Ekki er gert ráð fyrir fjölgun legurúma frá því sem var þegar þessi vinna fór fram árið 2006 þrátt fyrir gríðarlega fjölgun í þeim aldurshópum sem mest þurfa á sjúkrahúsþjónustu að halda. Um allt þetta má lesa nánar í ítarlegum upplýsingum um verkefnið á vef þess, www.nyrlandspitali.is. 

2. Landspítali er og hefur verið háskólasjúkrahús. Hártoganir um skilgreiningu á því breyta engu um bygginguna sem slíka. 

3. Varðandi stefnumörkun um sjúkrahúsþjónustu á landsvísu verður að beina spurningum til yfirvalda heilbrigðismála en benda má á að þáttur minnstu landsbyggðarsjúkrahúsanna í bráðaþjónustu er ekki meiri en svo að hann er aðeins brot af því sem fylgir breyttri aldursdreifingu á næstu tveim áratugunum. 

4. Að lokum verð ég að viðurkenna að ég hef ekki þekkingu til að tjá mig um hvort sjúkrahúsin sem Sighvatur telur upp henti vel sem hjúkrunarheimili aldraðra en mér sýnist flest hjúkrunarheimili stefna í þá átt að þar verði að mestu eða eingöngu boðið upp á einbýli og ýmsum sérþörfum sinnt sem ekki er gert ráð fyrir í þessum húsum. Enn og aftur vísast á velferðarráðuneytið. 

Sighvatur er velkominn hvenær sem er á fund okkar sem vinnum að undirbúningi nýs Landspítala og gjarnan að hann taki með sér þá sem áhuga hafa á að kynna sér málefnið nánar.