Umfjöllun um byggingu sjúkrahótels í Læknablaðinu

3. mars 2016

Í þriðja tölublaði Læknablaðsins frá 2016 er umfjöllun um byggingu sjúkrahótelsins sem verið er að byggja við Landspítala Hringbraut.

Rætt er við Erlend Hjálmarsson verkefnastjóra hjá NLSH sem segir að framkvæmdir gangi vel við bygginguna.

Erlendur segir jafnframt að um miðjan apríl ætti mesta ónæðið vegna framkvæmda að vera yfirstaðið.

Sjúkrahótelið verður tekið í notkun 2017.


Umfjöllun Læknablaðsins má sjá hér