Útboð á búnaði í sjúkra­hótelið

18. apríl 2018 Sjúkrahótel

Unnið er að gerð útboða vegna búnaðar í nýtt sjúkrahótel sem tekið verður í notkun á árinu.

Unnið er að gerð útboða vegna búnaðar í nýtt sjúkrahótel sem tekið verður í notkun á árinu.

Lokið er vinnslu hjá Ríkiskaupum á yfirferð útboða í rúm, húsgögn og í rafmagnstæki.

Gengið verður til samninga við Fastus ehf um kaup á rúmum og rafmagnstækjum og við Pennann og Sýrusson hönnunarhús um kaup á húsgögnum.

Unnið er að útboðum í tæki fyrir veitingaeldhús, gardínur, merkingar og sjónvörp í nýja sjúkrahótelið.