Vel gengur við upphaf uppsteypu á nýjum meðferðarkjarna

9. mars 2021

Vel hefur gengið við upphaf uppsteypu á nýjum meðferðarkjarna.

Helstu verkþættir sem nú eru í gangi við uppsteypu meðferðarkjarnans eru áframhaldandi þrif á klöpp og þrifalagssteypur. Vinna við undirstöður er hafin og stefnt er að steypa fyrstu undirstöðurnar á næstu dögum. Samhliða uppslætti er unnið við jarðskaut. Fljótlega mun svo vinna við fyllingar og lagnir hefjast, segir Eysteinn Einarsson staðarverkfræðingur hjá NLSH.