Vel gengur við uppsteypu meðferðarkjarna

13. júlí 2022

Uppsteypuverkefni nýs meðferðarkjarna er að ganga vel en aðalverktaki uppsteypu verksins er Eykt hf.

“Helstu verkþættir sem nú eru í gangi við uppsteypuna eru við mótauppslátt, járnabendingu, eftirspennu, jarðskaut, fyllingar, lagnir í grunni og uppsetningu stálvirkis. Neðri kjallari er að klárast og einnig botnplötur í efri kjallara. Unnið er við frágang kjallaraveggja, fyllingar að þeim sem og fyllingar inn í rými er í fullum gangi og langt komin.

Uppsteypa veggja og súlna efri kjallara er einnig langt komin. Vinna við fyrstu súlur, ramma og plötur á 1. hæð er hafin og mannvirkið vel sýnilegt.

Áfram er unnið við eftirspennu platna og gengur vel, einnig við stálvirki og búið að setja upp fyrstu súlur og bita. Uppsteypa neðri kjallara er að klárast og góður gangur í framkvæmdum við tengiganga fyrir norðan meðferðarkjarna.

Uppsteypa tengiganga milli meðferðarkjarna og rannsóknarhúss er að hefjast,” segir Eysteinn Einarsson staðarverkfræðingur hjá Nýjum Landspítala.