
Góður gangur í uppsteypu á rannsóknahúsi
Vinna verktaka við uppsteypu á rannsóknahúsinu hefur miðað vel í þvi hagstæða árferði sem hefur verið nú á vordögum. Þessa daga er unnið að því að stilla upp mótum fyrir veggi og súlur fjórðu hæðar vestan megin og vinna við plötu þriðju hæðar austan megin í húsinu. Vinna við tjörgun og einangrun veggja er nú á lokametrum og vinna við fyllingar er unnin eftir því sem hægt er. „Rannsóknahúsið er nú farið að rísa upp fyrir bílastæða – og tæknihúsið sem liggur við hlið þess og er nú að klárast. Í maí má búast við því að plata fimmtu hæðar verði komin í uppsteypu ,”segir Jóhann G. Gunnarsson, staðarverkfræðingur hjá NLSH.