Aðalfundur NLSH ohf. 2025

Aðalfundur Nýs Landspítala ohf, var haldinn þann 23.maí. Lögð var fram skýrsla stjórnar um störf félagsins á árinu 2024 og ársreikningur fyrir árið 2024 sem var samþykktur samhljóða. Á árinu 2024 beindist starfsemi félagsins að fjölmörgum hönnunar- og framkvæmdaverkum við Hringbraut, Grensás og við Sjúkrahúsið á Akureyri ásamt því að unnið er að viðamiklum þróunar- og tækniverkefnum s.s. tækja- og búnaðarverkefnum. Félagið fær árlegt framlag frá Ríkissjóði til að standa straum af kostnaði við byggingar- og þróunarverkefnin. Velta félagsins á árinu 2024 var 17,3 ma.kr.

Kosning til stjórnar:

Aðalmenn í stjórn voru kosin Finnur Árnason, Sigurður H. Helgason og Steinunn Sigvaldadóttir. Dagný Brynjólfsdóttir, sem setið hefur í stjórn félagsins frá stofnun þess árið 2010, lauk því á þessum aðalfundi 15 ára setu sinni, óslitið, í stjórn félagsins. Dagný sem starfaði um áratugaskeið hjá heilbrigðisráðuneytinu voru færðar þakkir frá NLSH. Dagný þakkaði fyrir sig og óskaði félaginu og starfsmönnum þess alls hins besta.

Varamenn voru kosnir Guðmann Ólafsson, Guðrún Birna Finnsdóttir og Þórdís Steinsdóttir. Á stjórnarfundi nýrrar stjórnar, sem haldinn var strax að loknum aðalfundarstörfum, var Finnur Árnason kosinn stjórnarformaður.

Fulltrúi hluthafa á aðalfundinum, Hrafn Hlynsson , þakkaði fyrir góðan fund og þakkaði einnig stjórn og starfsmönnun félagsins fyrir góð störf á árinu. Fluttar voru kveðjur frá fjármála- og efnhagsráðherra sem og heilbrigðisráðherra. Þá þakkaði framkvæmdastjóri félagsins, Gunnar Svavarsson, stjórn félagsins og hagaðilum fyrir gott samstarf nú sem fyrr. Ásgeir Margeirsson, formaður stýrihóps um skipulag framkvæmda við Landspítala, og önnur sérhæfð sjúkrahús, Runólfur Pálsson forstjóri Landspítala og Jón Hilmar Friðriksson forstöðumaður hjá Landspítala fluttu kveðjur og þökkuðu gott og árangursríkt samstarf.

Á forsíðu: Steinunn Sigvaldadóttir stjórnarmaður, Gunnar Svavarsson framkvæmdastjóri NLSH, Finnur Árnason stjórnarformaður og Sigurður H. Helgason stjórnarmaður.

Dagnýju Brynjólfsdóttur voru færðar þakkir NLSH fyrir farsæla stjórnarsetu

Smelltu á myndina til að stækka