
Samningsundirritun vegna útboðsverks Jarðvinna og veitur – Fífilsgata og Hrafnsgata
Í dag var undirritaður samningur Nýs Landspítala ohf. við Alma Verk ehf. vegna í endurgerðar Fífilsgötu milli Hringbrautar og Gömlu Hringbrautar, upprif á hluta Hrafnsgötu og fullgera götuna frá Fífilsgötu austur-fyrir inngang að Barnaspítala. Verkið er samstarfsverkefni NLSH, Reykjavíkurborgar og Vegagerðarinnar ásamt aðkomu Mílu, Ljósleiðarans og Veitna.
Á mynd frá vinstri eru: Hróðný Njarðardóttir Reykjavíkurborg, Steinar Þór Bachmann NLSH, Ólafur Magnús Birgisson sviðsstjóri framkvæmdasviðs NLSH, Gunnar Svavarsson framkvæmdastjóri NLSH, Alfreð Gunnarsson Baarregaard framkvæmdastjóri Alma Verk ehf., Ámundi V. Brynjólfsson Reykjavíkurborg, Norbert Majerkiwicz Alma Verk, Jónas Jónatansson NLSH, Aðalsteinn Jónsson NLSH og Indriði Waage NLSH.
Verkið felst meðal annars í að endurgera Fífilsgötu milli Hringbrautar og Gömlu Hringbrautar, upprif á hluta Hrafnsgötu og fullgera hana síðan frá Fífilsgötu austur-fyrir inngang að Barnaspítala, leggja nýjar fráveitu- og vatnsveitulagnir með allri þeirri jarðvinnu sem til þarf, setja niður fituskilju í Hrafnsgötu og breyta dælubrunni, útbúa og setja niður stokka og brunna fyrir háspennulagnir, jarðvegsskipta á hluta svæðis, gerð neyðarreinar í hægri beygju frá Hringbraut inn á Fífilsgötu, færa ljósastólpa við Hringbraut og Fífilsgötu, útbúa hjáleið fyrir Strætó í gegnum núverandi umferðareyjar á Fífilsgötu og inn að Vatnsmýrarvegi vestan við Fífilsgötu, fylla í hluta Burknagötu að bílastæðahúsi, leggja snjóbræðslulagnir, malbika stíga og götur, helluleggja og ganga frá yfirborði og merkingum á svæðinu. Einnig er innifalið í verkinu gerð steypts stoðveggjar og tröppu vestan meðferðarkjarna ásamt steyptrar rofastöðvar vestan við Barnaspítala, upp við Barónsstíg.
Yfirlit verksvæðis
