Félag um fasteignir Háskóla Íslands í heimsókn

Í dag komu í heimsókn starfsmenn í Félagi um fasteignir Háskóla Íslands. Gunnar Svavarsson, framkvæmdastjóri NLSH og Finnur Árnason, stjórnarformaður NLSH fóru yfir verkefni félagsins.

Að kynningu lokinni var gengið um framkvæmdasvæðið í fylgd Ólafs M. Birgissonar sviðsstjóra framkvæmdasviðs. Góð heimsókn enda mjög áhugasamir gestir.

Það voru líflegar og skemmtilegar umræður í morgunheimsókninni

Smelltu á myndina til að stækka