
Fundur um athafnaborgina Reykjavík
Fundur um athafnaborgina Reykjavík var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur í dag.
Þar var sagt frá uppbyggingarverkefnum sem eru að taka á sig mynd í Reykjavík og fjallað meðal annars um hönnun nýs sjúkrahúss í Hringbrautarverkefninu.
Ögmundur Skarphéðinsson frá Corpus hópnum kynnti þar hönnun nýs meðferðarkjarna.
Upptaka af fundinum er að finna hér.
Eftirtaldir fyrirlesarar voru með erindi á fundinum:
- Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, formaður borgarráðs: Hvað getur borgin gert fyrir atvinnulífið?
- Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri: Uppbygging atvinnuhúsnæðis í Reykjavík – staða og horfur
- Halldóra Vífilsdóttir, arkitekt: Landsbankinn – fjölbreytt atvinnu- og verslunarhúsnæði í miðborginni
- Árni Geir Magnússon, framkvæmdastjóri Grósku: Gróska - hugmyndahús í Vatnsmýri
- Ögmundur Skarphéðinsson, arkitekt: Landspítali Háskólasjúkrahús – nýr meðferðarkjarni
- Ragna M. Guðmundsdóttir, stofnandi Mstudio - Innovationlab: Hönnunardrifin nýsköpun – lykill að samkeppnisforskoti framtíðarinnar
- Árni Sverrir Hafsteinsson, forstöðumaður Rannsóknarseturs Verslunarinnar: Verslun í Reykjavík – greining á stöðu og framtíðarþróun