
Heilbrigðisráðherra, Svandís Svavarsdóttir, opnaði forval vegna hönnunar á nýbyggingu við Grensásdeild Landspítala
Heilbrigðisráðherra, Svandís Svavarsdóttir, kynnti í dag opnun forvals vegna hönnunar á nýbyggingu við Grensásdeild Landspítala. Um þrír tugir aðila sem mynduðu átta hópa sendu inn þátttökutilkynningar:
Þátttökutilkynningar bárust frá eftirtöldum aðilum:
- Ferill verkfræðistofa
VA arkitektar
Örugg verkfræðistofa
Myrra hönnunarstofa
Betula Landslagsarkitektar - Lota
Teknik verkfræðistofa
Teiknistofan Tröð
Kanon arkitektar
Hljóðvist - Mannvit
Arkís - Arkþing Nordic
Nordic
EFLA verkfræðistofa - THG arkitektar
VSÓ ráðgjöf
Trivium ráðgjöf
Lota - Úti og inni arkitektar
SNA arkitektar
Landmótun
Víðsjá verkfræðistofa
TKM verkfræði- og hönnunarhús
Örugg verkfræðistofa
Strendingur verkfræðistofa
Myrra hönnunarstofa - Verkís
TLB arkitektar - VSB verkfræðistofa
Yrki arkitektar
Ný viðbygging endurhæfingarhúsnæðis Grensásdeildar Landspítala verður um 3.800 fermetrar að stærð og mun rísa að vestanverðu við núverandi aðalbyggingu.