Heimsókn Emendo Consulting Group til NLSH

Í maímánuði tekur NLSH á móti tveimur deildum frá Emendo Consulting Group, sem heimsækir Ísland í tengslum við verkefnastjórnun hjá fyrirtækinu. Í kjölfar vel heppnaðrar vinnustofu, sem haldin var hjá NLSH á síðasta ári, vaknaði mikill áhugi hjá starfsmönnum Emendo á verkefninu um byggingu nýs Landspítala.

„Í tengslum við heimsóknina lýstu þau yfir áhuga á að fá kynningu á verkefninu og fá að heimsækja framkvæmdasvæðið. Hópurinn kemur til landsins í tveimur hópum með viku millibili og samanstendur af fjölmörgum starfsmönnum. Fyrri hópurinn kom í síðustu viku og vakti heimsóknin mikla lukku,“ segir Jens Hjaltalín Sverrisson, verkefnastjóri hjá NLSH.

Heimsóknin vakti mikla lukku

Smelltu á myndina til að stækka