Heimsókn frá skurðstofu og gjörgæslu Landspítala

Þann 8.maí var komið að heimsókn hóps frá starfsmönnum Landspítala og að þessu sinni var það hópur frá skurðstofu og gjörgæslu.

Dagskráin var hefðbundin og hófst á kynningu og að henni lokinni var gönguferð um meðferðarkjarnann undir stjórn starfsmanna NLSH Ásdísar Malmquist Ingþórsdóttur og Hildar Hrólfsdóttur.

Hópar frá Landspítala hafa komið á kynningar síðustu mánuði með reglulegum hætti til kynnast starfsemi NLSH og skoða umhverfi nýs Landspítala.