
Heimsókn Meistarafélags iðnaðarmanna í Hafnarfirði
Þann 30 apríl kom hópur á vegum Meistarafélags iðnaðarmanna í Hafnarfirði (MIH) til að fræðast um starfsemi NLSH og hvaða framkvæmdir standa yfir hjá félaginu. Að lokinni kynningu var farið um framkvæmdasvæðið þar sem mikil vinna stendur yfir við þrjú húsanna.
Jón Þórðarson hjá MIH sagði að heimsóknin hefði verið mjög fróðleg og skemmtileg og að fá tækifæri til að skoða þessa miklu framkvæmd í návígi. Hann þakkaði NLSH kærlega fyrir móttökurnar.