
Kynning á Akureyri vegna framkvæmda við stækkun sjúkrahússins
NLSH efndi til kynningar á Hótel KEA á Akureyri 27. maí sl. í samstarfi við Samtök iðnaðarins og Meistarafélag byggingarmanna á Norðurlandi. Fulltrúar NLSH og sjúkrahússins á Akureyri voru þar með kynningar. Þar var farið yfir verkefni NLSH með sérstaka áherslu á fyrirhugaðar framkvæmdir við sjúkrahúsið á Akureyri og fyrirkomulag væntanlegra útboðsverka þeim tengdum.
Eftir kynningar gafst góður tími til umræðna þar sem fundargestir og fulltrúar NLSH og SAk gátu miðlað upplýsingum og komið skoðunum og ábendingum á framfæri.
Það er mikilvægt fyrir NLSH að heyra beint sjónarmið lykilaðila á byggingarmarkaðnum á Akureyri og taka tillit til þeirra við framkvæmdina.
