NLSH óskar eftir tilboðum í útboðsverkið jarðvinna og veitur – Fífilsgata og Hrafnsgata

NLSH óskar eftir tilboðum í útboðsverkið jarðvinna og veitur – Fífilsgata og Hrafnsgata. Verkið felst meðal annars að endurgera Fífilsgötu milli Hringbrautar og Gömlu Hringbrautar, upprif á hluta Hrafnsgötu og fullgera hana síðan frá Fífilsgötu austur-fyrir inngang að Barnaspítala, leggja nýjar fráveitu- og vatnsveitulagnir með allri þeirri jarðvinnu sem til þarf, setja niður fituskilju í Hrafnsgötu og breyta dælubrunni, útbúa og setja niður stokka og brunna fyrir háspennulagnir, jarðvegsskipta á hluta svæðis, gerð neyðarreinar í hægri beygju frá Hringbraut inn á Fífilsgötu, færa ljósastólpa við Hringbraut og Fífilsgötu, útbúa hjáleið fyrir Strætó í gegnum núverandi umferðareyjar á Fífilsgötu og inn að Vatnsmýrarvegi vestan við Fífilsgötu, fylla í hluta Burknagötu að bílastæðahúsi, leggja snjóbræðslulagnir, malbika stíga og götur, helluleggja og ganga frá yfirborði og merkingum á svæðinu. Einnig er innifalið í verkinu gerð steypts stoðveggjar og tröppu vestan meðferðarkjarna ásamt steyptrar rofastöðvar vestan við Barnaspítala, upp við Barónsstíg.

Kynningarfundur fyrir bjóðendur verður haldinn á verkstað 6. maí kl. 13.

Blá brotalína sýnir afmörkun framkvæmdasvæðis

Smelltu á myndina til að stækka