
Ráðherrar vísitera verkefnastofu NLSH ohf.
Nýlega komu fjármála- og efnahagsráðherra og heilbrigðisráðherra í skoðunarferð á Hringbrautarsvæðið, auk þess að eiga fund með stjórn NLSH og stýrihóp um skipulag framkvæmda við Landspítala og önnur sérhæfð sjúkrahús. Alma Möller heilbrigðisráðherra hefur um langa tíð komið að verkefnum við uppbyggingu á nýjum spítala, en Alma sat í byggingarnefnd NLSH um árabil auk þess að fylgjast vel með í Landlæknistíð sinni. Þá hefur Daði Már fjármála- og efnahagsráðherar verið í forsvari fyrir uppbyggingu Fasteigna Háskóla Íslands, en NLSH er einmitt að verkefnastýra uppbyggingu á nýju húsi Heilbrigðisvísindasviðs HÍ.
Á fundinum var farið yfir núverandi verkefni en ekkert síður framtíðarhugmyndir annars áfanga í uppbyggingunni við Hringbraut. Rædd voru næstu skref við staðarval og frumathugargerð fyrir nýtt geðþjónustuhús Landspítala. Þá var farið yfir þá rýni sem KPMG hefur skilað nýlega á þörfum vegna framtíðarþjónustu Landspítala, sem vegna dag- og göngudeilda en ekkert síður legurýma. Að lokum var forhönnun á Sjúkrahúsinu á Akureyri rædd, en NLSH hefur nýlega skilað af sér forhönnunaráfanganum til næstu ákvörðunar og hönnunar- og byggingarstig.
Góður rómur var gerður að framvindu verkefna og þeim áskorunum sem NLSH stendur frammi fyrir daglega.